Svalir - svalahurð - þakgluggi
Laugateigur 46 01.36.520.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Helgi Mar Hallgrímsson
Byggingarfulltrúi nr. 1049
17. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum og að breyta innra skipulagi, ásamt því að byggja nýjar svalir og svalahurð á vesturkvist og bæta við þakglugga yfir stiga upp á rishæð íbúðar 0101 í húsi á lóð nr. 46 við Laugateig.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.365.2 samþykktur af byggingarfulltrúa 1. ágúst 2017, afrit samþykktra aðaluppdrátta dags. 22. febrúar 1990, 22. maí 1986 og 2. október 1946, afrit af ódagsettri umsögn burðarvirkishönnuðar er varða teikningar dags. 18. janúar 2019 og afrit af samþykki meðlóðarhafa og varða teikningar dags. 18. janúar 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2019. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 9. desember 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henn verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104684 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017487