Nýr bílskúr
Sólvallagata 23 01.16.200.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Brynjólfur Stefánsson
Byggingarfulltrúi nr. 1085
29. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr klæddan að utan með timburborðum á lóð nr. 23 við Sólvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2020.
Einnig fylgja útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júní 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. september 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2020.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Sólvallagötu 18, 20, 21, 22 og 25 og Ásvallagötu 8, 24 og 26 frá 18. ágúst 2020 til og með 15. september 2020.
Eftirtaldir sendu athugasemdir: Margrét J. Gísladóttir dags. 6. september 2020 og Björgvin Guðmundsson dags. 10. september 2020.
Stærð: 36,0 ferm., 111,5 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.