Áður gerðar breytingar og breytingar inni
Skeifan 11 01.46.210.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1047
3. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í innréttingum í skrifstofu á 3. hæð og breytingum á sameign til samræmis við upprunalega útfærslu í mhl. 25, í húsinu á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Erindi fylgir húsaskoðun dags. 11. október 2019 og bréf hönnuðar dags. 25. október 2019 ásamt afriti af samþykktri teikningu. Einnig samþykki meðeigenda dags. 29. nóvember 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.