Viðbygging
Veltusund 3B 01.14.042.0
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1049
17. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbyggingu úr timbri á steyptum kjallara þar sem verða tveir veitingastaðir í flokki I, tegund veitingaverslun á 1. hæð, undirbúningseldhús, starfsmannaaðstaða og tvær íbúðir á 2. hæð og þrjár íbúðir á 3. hæð ásamt matsal starfsfólks veitingastaðanna í húsi á lóð nr. 3b við Veltusund.
Erindi fylgir skýringateikningar hönnuðar dags. 3. október 2019, greinagerð hönnuðar dags. 30. september 2019 og greinagerð um brunahönnun dags. 4. október 2019.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. október 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. nóvember 2019 fylgir erindi. Erindi fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2019.
Stærðir stækkunar eru:
Kjallari: Óbreytt.
1. hæð: 12, 9 ferm., 33,5 rúmm.
2. hæð: 48,9 ferm., 136,9 rúmm.
3. hæð: 48,9 ferm., 161,8 rúmm.
Þakvirki: 23,0 ferm., 8,4 rúmm.
Heildarstækkun 110,7 ferm., 340,6 rúmm.
Samtals stærð eftir stækkun: 690,9 ferm., 1850,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.