Kvistur endurnýjaði - svalir í þak
Tómasarhagi 42 01.54.510.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Geir Gunnlaugsson
Byggingarfulltrúi nr. 1043
5. nóvember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka kvisti á vestur- og austurhlið og setja upp nýjar svalir á þak við báða kvistina á húsi á lóð nr. 42 við Tómasarhaga.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. apríl 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. ágúst 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. maí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.
Stækkun: 3,3 ferm., 10,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106477 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023642