Fjólugata 19, Breytingar inni og úti - fjölgun eigna
Fjólugata 19 (01.185.513)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Guðjón Ingi Árnason
Byggingarfulltrúi nr. 1049
17. desember, 2019
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir þremur íbúðum í húsinu, auka salarhæð í kjallara, stækka bílskúr, breyta aðkomutröppum, stækka og sameina svalir á 2. hæð, fjarlægja skorstein og endurnýja þak, einnig er sótt um leyfi til að hækka þak og koma fyrir sorpgeymslu á lóð nr. 19 við Fjólugötu.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 15. mars 2019, Umsögn burðarþolshönnuðar Verkís dags. 23. ágúst 2019 og minnisblað Verkís um brunahönnun dags. 11. september 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. desember 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Fjólugötu 17, 19a,19b, 21 og 21a, Sóleyjargötu 17, 19 og 21 og Laufásvegi 48 og 48a frá 15. október 2019 til og með 12. nóvember 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Flosi Kristjánsson f.h. eigenda Laufásavegar 48 dags. 16. október 2019 og Norska sendiráðið dags. 12. nóvember 2019.
Stækkun:
Kjallari: 50,3 ferm., 133,2 rúmm.
3. hæð: 57,2 ferm., 145,9 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 621,5 ferm., 1.8350,2 rúmm.
Svalir stækkun:
1. hæð: 30,7 ferm.
2. hæð: 10,7 ferm.
Samtals svalir eftir stækkun: 72,1 ferm.
Jafnframt er erindi BN053919 dregið til baka.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2019.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102203 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009913