Viðbygging bak við hús
Ægisíða 44 01.55.500.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Magnús Geir Þórðarson
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
Skipulags- og samgönguráð nr. 21
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu norðan við hús og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 44 við Ægisíðu. Erindi var grenndarkynnt frá 21. september 2018 til og með 19. október 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hjalti Kristjánsson f.h. TD á Íslandi dags. 17. október 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. október 2018 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018 samþykkt. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
107 Reykjavík
Landnúmer: 106621 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016346