Bygging vita, útsýnispallur tröppur og skábraut
Sæbraut 91
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 969
17. apríl, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja nýjan innsiglingarvita, sem jafnframt mun nýtast sem útsýnispallur og áningarstaður á leið meðfram norðurströndinni á lóð nr. 91 við Sæbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. apríl 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.