Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Aðalstræti 7 01.14.041.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 961
13. febrúar, 2018
Samþykkt
52944
54014 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka og dýpka kjallara, endurbyggja eldra hús, bæta við svölum á bakhlið, byggja viðbyggingu að Ingólfstorgi, innrétta veitingastað í flokki II á 1. hæð og í kjallara og íbúðir á efri hæðum húss á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. janúar 2018.
Stækkun: 807,2 ferm., 2.628,3 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100856 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006310