Líkamsrækt, spa o.fl.
>Seljavegur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1086
6. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja við hótel líkamsrækt, spa, þvottahús, vörumóttöku, sorpgeymslu, tækni- og stoðrými í kjallara, undir garðrými IG-1, á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 25. ágúst 2020, yfirlit breytinga með stimpli hönnuðar dags. 25. ágúst 2020, samþykki eigenda dags. 8. september 2020, brunahönnun, útg. bh04, dags. 26. ágúst 2020, greinagerð um algilda hönnun, útgáfa 01b, dags. 8. september 2020, bréf hönnuðar dags. 8. september 2020, skipulag útisvæðis frá Landslagi mótt. 11. september 2020 og minnisblað hönnuðar vegna bílastæða dags. 11. september 2020. Einnig bréf frá hönnuði dags. 28. september 2020, bréf vegna innigarðs, algildrar hönnunar og minnisblað dags. 1. október 2020, bréf vegna lokunar glugga dags. 2. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing vegna lóðar sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.