Breytingar - BN057528
Ármúli 32
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1080
25. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN057528, þannig að rafstýrðar ál/gler rennihurðir eru settar á milli rannsóknarstofa sem opnast við brunaboð, fjarlægðir þrír gluggar í kæliklefa, einn á suðausturhlið og tveir á suðvesturhlið, innra skipulagi tæknirýmis við vörumóttöku er breytt, bætt er við vaski í rannsóknastofu 1 og brunatexti uppfærður í húsi á lóð nr.32 við Ármúla
Greinagerð hönnuðar dags. 29. júlí 2020 fylgir.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.