Breyta gluggum, hurðum og innra skipulagi á 1.hæð, verslun í 3 vinnustofur.
Fálkagata 18
Síðast Frestað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1082
8. september, 2020
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á 1. hæð, breyta verslunarhúsnæði á 1. hæð í þrjár vinnustofur og geymslur tengdar þeim í kjallara, einnig er stigi milli kjallara og fyrstu hæðar fjarlægður og aðkomu að kjallara breytt þannig að inngangur verður frá norðurhlið hússins á lóð nr. 18 við Fálkagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 27. júlí 2020 og yfirlit yfir breytingar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2020.