Tjarnargata 9 - Breytingar
Alþingisreitur 11.41.106
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1075
7. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056197 þannig að eldvarnarkröfum hurða í kjallara, jarðhæð og á 5. hæð er breytt og skábraut í kjallara er fjarlægð í húsi nr. 9 við Tjarnargötu á Alþingisreit.
Erindi fylgir yfirlit breytinga mótt 19. júní 2020, bréf hönnuðar dags. 19. júní 2020 og brunahönnun Eflu dags. 16.06.2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.