Svalir - 2.hæð
Langagerði 82 18.32.212
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Þórður Daníel Bergmann
Byggingarfulltrúi nr. 1082
8. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN043152, sem felst í því að svalir eru settar á suðurhlið og innra skipulagi breytt á annarri hæð í einbýlishúsi á lóð nr. 82 við Langagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. ágúst 2020 fylgir erindi. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Langagerði 80 og 84.
Engar athugasemdir bárust.
Gjöld kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108569 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014985