Svalir - þakgluggi
Bragagata 23 11.86.223
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Hrafnkell Flóki K. Einarsson
Byggingarfulltrúi nr. 1085
29. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að setja svalir á vesturgafl íbúða 0101 og 0201 og bæta við þakglugga á suðurþekju íbúðarhúss á lóð nr. 23 við Bragagötu.
Erindi fylgir ódagsett samþykki meðeigenda og afrit af umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. maí 2020, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 7. júlí 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 14. júlí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. september 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bragagötu 21, 22, 22a og 24 og Nönnugötu 3a frá 25. ágúst 2020 til og með 22. september 2020. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102251 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007644