1 - 3 - Fjölbýlishús
Tangabryggja 1 40.22.502
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1079
18. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvö þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, mhl. 01, hús nr. 1 með 14 íbúðum og mhl.02, hús nr. 3 með 15 íbúðum eða samtals 29 íbúðir ásamt djúpgámum, mhl.03 á lóð nr. 1 við Tangabryggju.
Stærðir:
Mhl.01: 1.065.3. ferm., 3574.5 rúmm. Þar af B-rými: x.xx ferm.
Erindi fylgir greinargerð verkfræðistofunnar Eflu ehf. um brunahönnun útgáfa 001-V01 dags. 7. apríl 2020, mæliblað 4.022.5, útgefið 4. september 2019 og óútgefið hæðablað unnið af Verkís ehf dags.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 228396 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131415