Breyta innra skipulagi á 1. og 2.hæð og setja upp nýjan stálstiga á milli hæða.
Nýlendugata 14 11.31.108
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1070
2. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð og færa inngang inn á barinn Mýrargötumegin, um eitt gluggabil, sem verður um leið aðalinngangur inn á veitingastað í flokki II, tegund a) veitingahús, fyrir 105 gesti, einnig verður settur nýr stálstigi frá 1. hæð upp á 2. hæð í húsi á lóð nr. 14 við Nýlendugötu.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 12. maí 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100166 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024228