Breyta áður gerðri íbúð í séreign
Kirkjuteigur 9 01.36.050.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Birgir Birgisson
Kristín Fjóla F Birgisdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1081
1. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að gera áður gerða íbúð að séreign ásamt hluta bílageymslu í húsi nr. 9 við Kirkjuteig.
Erindi fylgir skýrsla húsaskoðunarfulltrúa byggingarfulltrúa dags. 20 maí. 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 29. maí 2020 fylgir erindi, ásamt tölvupósti byggingarfulltrúa dags. 25. maí 2020 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.