Skjólþak
Mýrargata 26 01.11.530.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1075
7. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta stálhurð í glerhurð, hurðargat stækkað, komið fyrir útigeymslu undir stiga og skjólþak sett yfir gönguleiðir á 6. og 7. hæð á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 26 við Mýrargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. maí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2020.
Stækkun vegna geymslu A rýmis er: 10,8 ferm., 22,0 rúmm.
Stækkun vegna skjólþaka sem er B rými á 3. og 7. hæð er: 165,6 ferm., 466,2 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100059 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022580