Kvistur og svalir á rishæð
Reykjahlíð 8 01.70.130.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Selma Rut Þorsteinsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1079
18. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að setja kvisti, koma fyrir svölum á þaki og koma fyrir salerni á rishæð íbúðarhúss á lóð nr. 8 við Reykjahlíð.
Stækkun: 5.0 ferm., 11.6rúmm.
Erindi fylgir fylgiskjal nr. 1, skýringarmynd tekin af vef Þjóðskrár 17. febrúar 2020, útskrift úr gerðarbók skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019 og samþykki meðlóðarhafa þar sem vísað er til teikninga dagsettum 24. febrúar 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. maí 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2020.
Erindi var grenndarkynnt fyrir fyrir hagsmunaaðilum að Barmahlíð 6 og 8, Reykjahlíð 10, Mávahlíð 1 og Eskihlíð 23, frá 26. júní 2020 til og með 24. júlí. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2020 fylgir erindi. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 106993 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013441