Breytingar - innveggir og stigar fjarlægðir o.fl.
Kárastígur 7 01.18.230.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Hadeel Ibrahim
Byggingarfulltrúi nr. 1075
7. júlí, 2020
Frestað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta öllu innra skipulagi, setja nýjar svalir, þakglugga og tröppur, lækka kjallaragólf viðbyggingar, hækka útveggi viðbyggingar án þess að breyta mænishæð og garður verður endurskipulagður við hús á lóð nr. 7 við Kárastíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 16. desember 2019, minnisblað hönnuðar dags. 29. júní 2020, uppmæling á núverandi húsi dags. 29. júní 2020 og skýringamynd breytinga dags. 29. júní 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. janúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2020.
Stækkun: 14,3 ferm., 68,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Frestað.
Vísað til athugasemda.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024896