Fjölbýlishús sameina lóð 18 og 20
Brautarholt 20 01.24.220.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1080
25. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að sameina lóðir 18 og 20 við Brautarholt í nr. 20, rífa bakhús sem tengt er núverandi matshlutum, einnig er sótt um að byggja nýja inndregna hæð ofan á 5. hæð mhl. 02 og mhl. 01 og innrétta 64 íbúðir á 2.-5. hæð, stækka glugga koma fyrir svölum, byggja stiga og lyftuhús sem og nýtt bakhús við mhl. 03 þar verður hjólageymsla , sorpgeymsla, þvottur og sameiginlegt rými á lóð nr. 20 við Brautarholti. Dregin eru til baka erindi BN056162 og BN056161 með þessu erindi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2019 fylgir erindi.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 164, 166, 168, 170-172 og 174, Brautarholti 16 og 22 og Skipholti 15, 17, 19 og 21 frá 14. október 2019 til og með 11. nóvember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun er samtals : 797,7 ferm., 2,754,6 rúmm.
Niðurrif er samtals: 554,7 ferm., 1.894,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um sameiningu eigna eigi síðar en við fokheldi. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007696