Svalir, opnanleg fög, síkka glugga o.fl.
Laugarásvegur 40 01.38.500.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Ari Garðar Georgsson
Benedikta Helga Gísladóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1074
30. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að setja opnanleg fög í valda glugga, setja nýjar svalir og síkka glugga á suð-vesturhlið sem og breyta innra skipulagi beggja hæða í húsi á lóð nr. 40 við Laugarásveg.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar hjá Víðsjá verkfræðistofu, dags. 8. júní 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. desember fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 16. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Sunnuvegi 1 og 3 og Laugarásvegi 42 frá 7. nóvember 2019 til og með 5. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104912 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016706