Baldursgata 10, Ofanábygging og svalir
Baldursgata 10 (01.186.107)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Hjálmar Sveinsson
Ósk Vilhjálmsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1070
2. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri, klædda bárujárni, ofan á núverandi hús á lóð nr. 10 við Baldursgötu.
Erindi fylgir afrit í A4 af eldri samþykktum teikningum og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. september 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. febrúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. febrúar 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Nönnugötu 4, Baldursgötu 12, 9, 7a og Urðarstíg 2 og 4 frá 5. nóvember 2019 til og með 3. desember 2019 og Urðarstíg 3 frá 18. desember 2019 til og með 20. janúar 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, formaður húsfélagsins að Baldursgötu 12, dags. 28. nóvember 2019, Guðrún Kristjánsdóttir og Ævar Kjartansson dags. 1. desember 2019, Friðþjófur Högni Stefánsson, Signý Ósk Davíðsdóttir, Sigurjón Gísli Helgason og Þóra Jónsdóttir dags. 3. desember 2019 og Hildur Guðmundsdóttir dags. 17. janúar 2020.
Stækkun: 98,6 ferm., 250,7 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102228 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007545