Viðbygging
Skólavörðustígur 31 01.18.223.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Leifur Vilberg Orrason
Orri Wilberg
Byggingarfulltrúi nr. 1082
8. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu ásamt því að gera inndregnar svalir á eldri hluta í húsi á lóð nr. 31 við Skólavörðustíg.
Stækkun: 100,4 ferm., 280,3 rúmm.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018 við fsp. SN180306, umsögn Minjastofnunar dags. 5. júní 2018 og afrit af tölvupósti vegna fellingu trjáa dags. 14. júní 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. ágúst 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Skólavörðustíg 29a, 33 og 33a, Bjarnarstíg 10, 11 og 12 frá 2. júní 2020 til og með 31. júlí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Guðbjörg Lilja Pétursdóttir dags. 25. júní 2020 og Sverrir Bjarnason dags. 29. júní 2020.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Landnúmer: 101890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017696