Ungmennaráð, tillögur 2022, eftirfylgni á tillögum ungmennaráðs
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 3611
20. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum þ. 12.október sl. eftirfarandi tillögu til bæjarráðs:
12. Eftirfylgni á tillögum ungmennaráðs
Ungmennaráð Hafnarfjarðar hvetur bæjarstjórn til að fylgja betur eftir tillögum ráðsins og tryggja að farið sé eftir samþykktum tillögum.
Vísað til bæjartstjóra og einnig vísað til bæjarráðs.
Svar

Bæjarráð þakkar ungmennaráði fyrir tillöguna.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillöguna. Fræðsluráð er að funda með ungmennaráði þann 1. nóv. nk þar sem þessi tillaga verður m.a. rædd og útfærð betur.