Hamranes reitur 29.B, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 893
5. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 8. júní sl. að auglýsa nýtt deiliskipulag í Hamranesi, reit 29.B, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á reitnum sem úthlutað var sem þróunarreit er gert ráð fyrir tveimur 5 hæða fjölbýlishúsum með allt að 45 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílakjallara ásamt bílastæðum á lóð. Tillagan var auglýst frá 21. júní til 2. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Málinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.