Hringhamar 9 og 11, byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 880
13. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Plúsarkitektar ehf. fh. Byggingarfélags Hafnarfjarðar sækir 23.3.2022 um byggingu matshluta 1 og 2 skv. teikningu Haralds Ingvarssonar dags. 23.3.2022. Matshluti 1 er 36 íbúða hús og matshluti 2 er bílakjallari, bílaplan og skábraut. Byggingin skiptist í tvo sambyggða hluta með aðskilda stigakjarna. Lægri hluti er 4 hæðir og 15 íbúðir og hærri hluti 6 hæðir og 21 íbúð.
Svar

Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.