Selvogsgata 3, breyting á deiliskipulagi
Selvogsgata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 764
25. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti 23.2.2022 að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi Selvogsgötu 3. Breytingin snýr að nýjum byggingarreit fyrir geymslu 4,58x5,31m í NV-horni lóðar. Hámarkshæð geymslu er 2,35 m. Þak einhalla til suðurs. Stærð 24.3m2. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 3. júní 2022. Athugasemd barst. Lagt fram svar Hafnarfjarðarbæjar við framkominni athugasemd.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Selvogsgötu 3 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.