Hamranes reitur 19.B, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 750
18. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Ásgeir Ásgeirsson fh. lóðarhafa leggur 3.1.2022 inn tillögu að deiliskipulagi reitar 19.B dags. 22.12.2021. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur 4-7 hæða fjölbýlishúsum með allt að 70 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílastæðum ofanjarðar og möguleika á geymslum í kjallara. Skipulags- og byggingarráð óskaði umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs á fundi sínum þann 7.1.2022. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs lögð fram.
Svar

Erindinu er frestað á milli funda.