Óseyrarhverfi, deiliskipulag
Síðast Vísað til skipulagsfulltrúa á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1890
4. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.apríl sl. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna tillögu að deiliskipulagi Óseyrarhverfis.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Óseyrarhverfis verði auglýst og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Hugmynd um Hvaleyrarbraut í stokk er sett fram í greinargerð skipulagsins. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skoðaðir verða valkostir og kostnaðarmat vegna hugsanlega breytinga á skipulagi Hvaleyrarbrautar.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og svarar Ólafur Ingi andsvari og Adda María Jóhannsdóttir kemur að andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.