Reykjanesbraut, deiliskipulag
Reykjanesbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 752
15. febrúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 8. desember 2021 að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Reykjanesbraut í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar með tengibraut sem mun þjónusta iðnaðarsvæðið í Kapelluhrauni og Hellnahrauni og afmarkast frá afleggjara til Krýsuvíkur að sveitarfélagsmörkum Hafnarfjarðar og Voga alls 5.6 km. Deiliskipulagið var auglýst tímabilið 13.12.2021-24.1.2022. Athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn og uppfærð gögn til samræmis við hana.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærð gögn og umsögn skipulagsfulltrúa og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn í samræmi við skipulagslög.