Hringhamar reitur 25.B, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1882
12. janúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 7.janúar sl. Tekið fyrir að nýju. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 24.8.2021 að auglýsa deiliskipulag reitar 25.B með vísan til tillögu 2. Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarstjórn samþykkti þann 1.9.2021 samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst tímabilið 10.9 - 22.10.2021 Auk þess sem tillagan var kynnt á almennum kynningarfundi þann 30. september sl. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa þann 2.11.2021 að ræða við lóðarhafa og svara framkomnum athugasemdum. Uppfærð deiliskipulagstillaga dags. 8.12.2021 reitar 25.B lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.