Áshamar reitur 1.A-2.A, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1876
29. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 21.september sl. Varmárbyggð ehf. lagði 17.7.2021 inn tillögu að deiliskipulagi Áshamars 1A-2A. Tillagan gerir ráð fyrir 6 fjögurra til fimm hæða fjölbýlishúsum með allt að 170 íbúðum með möguleika á kjallara. Gert er ráð fyrir bílastæðum ofan- og neðanjarðar. Lögð fram uppfærð gögn.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að uppfærð gögn að deiliskipulagi reitsins verði auglýst í samræmi við skipulagslög. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson tekur til máls. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og svarar Ingi andsvari.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.