Hamranes reitur 3.A, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 748
14. desember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti 10. ágúst 2021 fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi reitar 3.A og að hún yrði auglýst og vísaði til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfesti þann 12. ágúst 2021 afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst tímabilið 27.8 - 22.10.2021 Auk þess sem tillagan var kynnt á almennum kynningarfundi þann 30. september sl. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa þann 2.11.2021 að ræða við lóðarhafa og svara framkomnum athugasemdum. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24.11.2021 ásamt uppfærðri deiliskipulagstillögu reitar 3.A lögð fram.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við 41. gr. skipulagslaga og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.