Hringhamar 5H og Nónhamar 3H, lóðaumsókn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1870
26. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð bæjarráð frá 20.maí sl. Lögð fram lóðarumsókn HS Veitna hf. um lóðirnar Hringhamar 5h og Nónhamar 3h í samræmi við deiliskipulag bæjarins í Hamraneshverfi fyrir dreifistöðvar HS Veitna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðunum Hringhamar 5h og Nónhamar 3h verði úthlutað til HS Veitna hf.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu bæjarráðs um úthlutun lóðarinnar.