Miðbær, deiliskipulag reitur 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 741
7. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 29. júní s.l. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar. Breytingin nær til reits sem afmarkast af Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Austurgötu og Linnetsstíg. Í breytingunni felst m.a. að byggingarheimildum frá 2001 er breytt. Afgreiðsla skipulags- og byggingarráðs var staðfest 1. júli sl. af bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst tímabilið 15.07.-26.08.2021. Kynningarfundur var haldinn 25.8.2021. Frestur til að skila inn athugasemdun var framlengdur til 31.8.2021. Athugasemdir bárust.
Svar

Lagt fram og skipulagsfulltrúa falið að svara framkomnum athugasemdum.