Miðbær, deiliskipulag reitur 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 742
21. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 29. júní s.l. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar. Breytingin nær til reits sem afmarkast af Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Austurgötu og Linnetsstíg. Í breytingunni felst m.a. að byggingarheimildum frá 2001 er breytt. Afgreiðsla skipulags- og byggingarráðs var staðfest 1. júli sl. af bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst tímabilið 15.07.-26.08.2021. Kynningarfundur var haldinn 25.8.2021. Frestur til að skila inn athugasemdum var framlengdur til 31.8.2021. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og byggingarráðs 7.9.2021 var skipulagsfulltrúa falið að svara framkomnum athugasemdum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa ásamt uppfærðum uppdrætti þar sem tekið hefur verið tillit til þeirra athugasemda sem bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærð gögn vegna breytinga á deiliskipulagi reitar 1 og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.