Hraun vestur, rammaskipulag endurskoðun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 730
9. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu endurskoðun rammaskipulags reits sem afmarkast af Reykjavíkurvegi, Fjarðarhrauni og Flatahrauni.
Svar

Skipulags- og byggingaráð samþykkir að samhliða vinnu við endurskoðun aðalskipulagsins á Hraunum vestur verður rammaskipulagið uppfært til samræmis við breyttar forsendur. Hlutverk rammaskipulagsins er að vera leiðbeinandi og gefa heildarsýn um þróun skipulagssvæðisins þar sem aðstæður og eftirspurn um gerð húsnæðis eru breytilegar.