Sléttuhlíð, óveruleg breyting á aðalskipulagi
Sléttuhlíð
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1865
3. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
10.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.febrúar sl. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 24. mars. sl. var samþykkt að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Sléttuhlíðar þar sem bætt yrði í greinargerðina heimild til að samþykkja gistiaðstöðu í flokki II í frístundabyggðinni í Sléttuhlíð. Skipulags- og byggingarráð samþykkti breytingu á deiliskipulaginu samanber umsögn skipulagsfulltrúa og vísaði erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 27. maí sl. Breytingin var grenndarkynnt frá 14. apríl í 4 vikur. Athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað. Breytingin var auglýst í b-deild Stjórnartíðinda þann 12. júní 2020
Í bréfi dags. 13. ágúst 2020 frá Skipulagsstofnun kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að það þurfi að vera til staðar skipulagsákvæði í aðalskipulaginu um tegund gististaða sem heimilt er að reka í atvinnuskyni í frístundabyggð ásamt umfjöllun um það hvers vegna það sé talið ákjósanlegt.
Skipulags- og byggingarráð óskaði þann 9.2.2021 eftir því að hafin yrði við aðalskipulagsbreytingu í samræmi við erindið og vísaði erindinu til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs þann 17.2.2021.
Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu þar sem bætt verður í greinagerð skipulagsins heimild til að leyfa gistingu í flokki II á svæðinu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna skilmála Sléttuhlíðar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.