Sléttuhlíð, óveruleg breyting á aðalskipulagi
Sléttuhlíð
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1864
17. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
17.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 9.febrúar sl. Á fundi þann 24. mars 2020 var samþykkt að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Sléttuhlíðar þar sem bætt yrði í greinargerðina heimild til að veita gistiaðstöðu í flokki II í frístundabyggðinni í Sléttuhlíð. Á fundi ráðsins þann 19. maí 2020 var samþykkt breyting á deiliskipulaginu samanber umsögn skipulagsfulltrúa og var erindinu vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 27. maí 2020. Í bréfi dags 13. ágúst 2020 frá Skipulagsstofnun kemur frá að umrædd breyting sé ekki í samræmi við Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir því að umhverfis-og skipulagssvið hefji vinnu við aðalskipulagsbreytingu í samræmi við erindið og vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.