Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, þróunaráætlun 2020-2024
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1863
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
14.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.janúar sl. Tillaga að þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024, dags. 15. janúar 2021 lagt fram til kynningar og afgreiðslu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi þróunaráætlun og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson og til andsvars koma þau Friðþjófur Helgi Karlsson og Rósa Guðbjartsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024