Völuskarð 14,umsókn um lóð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1863
3. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
35.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.janúar sl. Lögð fram umsókn Helga Vilhjálmssonar ehf. um lóðina nr. 14 við Völuskarð.
Tvær umsóknir bárust um lóðina og dró fulltrúi sýslumanns úr umsóknum. Dregin var út umsókn Helga Vilhjálmssonar ehf. og leggur bæjarráð því til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði nr. 14 verði úthlutað til félagsins.
Svar

Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu bæjarráðs um úthlutun lóðarinnar.