Ásland 4, deiliskipulag
Ásland
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 727
9. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu framtíðar uppbygging svæðisins.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði undirbúningsvinna að deiliskipulagi Áslands 4 og 5.

Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að vinna við skipulag Áslands 4 og 5 er að hefjast. Hafnarfjarðarbær hefur verið í stöðugum vexti í 81 ár eða þar til á síðasta ári þegar íbúum í Hafnarfirði fækkaði um 1% í fyrsta skipti síðan 1939. Það er þvert á forsendur aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 þar sem gert ráð fyrir 1.2-2.5% fjölgun á ári. Meiri eftirspurn en framboð er eftir íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði. Nauðsynlegt er að hraða vinnu við skipulag svæðisins svo hægt verði að úthluta lóðum hið fyrsta. Jafnframt er lagt til hafin verði vinna við að skoða fleiri kosti varðandi byggingarland í Hafnarfirði.

Fulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðisflokks bóka eftirfarandi:

Þetta eru auðvitað enn og aftur orðin tóm hjá fulltrúa Samfylkingarinnar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir lóðum í Skarðshlíð undanfarið og ætla má að síðustu lóðunum í því hverfi verði úthlutað á fundi bæjarráðs í næstu viku. Hverfið sem er í jaðri upplands Hafnarfjarðar í skjólsælum hlíðum á móti suðri verður að okkar mati eitt eftirsóttasta hverfi höfuðborgarsvæðisins innan fárra ára. Nýbyggingarsvæði í Hafnarfirði eru samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og aðalskipulagi Hafnarfjarðar; Hamranes, Ásland 4 og 5 og Vatnshlíð. Samþykkt hefur verið að hefja vinnu við deiliskipulag Áslands 4 og 5, þar sem gert er ráð fyrir góðri blöndu húsnæðis.

Líkt og við flest vitum og þekkjum, en virðist því miður ítrekað koma fulltrúum Samfylkingarinnar sérstaklega á óvart, var forsenda uppbyggingar á þessum svæðum niðurrif Hamraneslínu. Samkomulag við Landsnet gerði ráð fyrir að niðurrifi línanna yrði lokið árið 2018, en ekkert varð að þeim áformum vegna kæru umhverfissamtaka og niðurfellingu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála á framkvæmdaleyfi á Lyklafellslínu. Með samkomulagi bæjarins við Landsnet var Hamraneslína flutt til bráðabirgða frá jaðri Skarðshlíðar og nýbyggingarsvæðinu í Hamranesi. Hófust þeir flutningar um mitt ár 2019 og nú standa yfir framkvæmdir við gatnagerð í Hamranesi þar sem íbúðauppbygging er nú að hefjast.

Auk þess má nefna þá uppbyggingu sem nú er að hefjast við Hraun vestur ? Gjótur, sem er hluti af mjög vænlegu byggingarlandi. Þar er fyrirhuguð byggð, 490 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Aðal- og deiliskipulag liggur fyrir og gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist nú á vormánuðum. Þeirri skynsamlegu og kröftugu uppbygginu hefur Samfylkingin ítrekað lagst gegn; lagst gegn uppbyggingu á besta stað við samgönguás Borgarlínunnar. Við segjum: komið með og gerum þetta saman.

Hægt er að fullyrða að bæjarbúar munu sjá afrakstur mikillar vinnu þessa kjörtímabils á næstu mánuðum líkt og farið hefur verið yfir hér að ofan. Íbúum mun fjölga verulega og falleg hverfi byggjast upp.

Fulltrúi Samfylkingar bókar eftirfarandi:
Málflutningur meirihlutans undanfarin ár hefur verið að framtíðin sé björt í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, en lítið bólar á efndum. Tölurnar tala sínu máli og þær segja einfaldlega að Hafnarfjörður er neðstur á listanum þegar kemur að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Það er ekki rétt að Samfylkingin hafi lagst gegn uppbyggingu í Hraun vestur - Gjótur. Samfylkingin hefur aftur og aftur lagt til að staðið sé við skipulag, sem unnið hefur verið í samráði við fólkið í bænum, en fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks gjarnan snúist gegn á síðustu stundu og vilja umturna. Það er dæmigert fyrir hringlandann og stöðnunina í skipulagsmálum bæjarins. Nú er ráð að láta verkin tala.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks benda á að fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingarráði svo og í bæjarstjórn samþykktu deiliskipulag á Hraunum vestur - Gjótur á fyrri stigum málsins en af óútskýrðum ástæðum snérust sömu fulltrúar gegn skipulaginu á síðari stigum. Nú er uppbygging að hefjast. Það er bjart framundan í skipulagsmálum hér í Hafnarfirði.

Fulltrúi Bæjarlistans tekur undir bókun Samfylkingarinnar. Sérstaklega hvað varðar uppbyggingu á Hraun vestur Gjótur svæðinu sem seint getur talist vera vænleg eins og meirihlutinn hefur haldið fram ítrekað. Þar er verið að stefna að 490 íbúðum sem er allt of mikið byggingamagn á þessum litla reit.

Fulltrúi Samfylkingarinnar bókar eftirfarandi:

Fulltrúi Samfylkingarinnar minnir á að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafnaði sínu eigin rammaskipulagi fyrir Hraun-vestur, Gjótur, sem hafði verið unnið í nánu samstarfi og kynnt íbúum og hagaðilum. Það var gert án nokkurar ástæðu. Þess í stað var keyrt í gegn deiliskipulag sem var í engu samræmið við áður samþykkt rammaskipulag. Þar er gottað það sé bjart framundan í skipulagsmálum, en það hefur verið málflutningur Sjálfstæðisflokksins síðustu sjö ár, en fátt hefur gerst. Tölurnar tala sínu máli.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 123106 → skrá.is
Hnitnúmer: 10026881