Völuskarð 4, deiliskipulags breyting
Völuskarð 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 823a
10. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðlsufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann þann 20. janúar 2021 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga er nær til lóðarinnar við Völuskarð 4 og að málsmeðferð verði í samræmi við 43.gr. skipulagslaga. Í breytingunni felst að: byggingareit er breytt, bílskúr verður hluti af aðalhæð og bundin byggingarlína færist fjær götu og verði nú bundin að lágmarki 7m í stað 9m. Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulagsins. Erindið var grenndarkynnt frá 25.01-01.03.2021 með heimild til styttingar grenndarkynningar berist skriflegt samþykki þeirra sem grenndarkynninguna fengu. Skriflegt samþykki barst embættinu þann 05.02.2021 og telst nú grenndarkynningu lokið.
Svar

Skipulagsfulltrúi samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og að málsmeðferð skuli lokið í samræmi við skipulagslög.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 227997 → skrá.is
Hnitnúmer: 10130508