Samstarf almenningsbókasafna á höfuðborgarsvæðinu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3560
5. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 29.október sl. Lagt fram bréf frá forstöðumönnum almenningsbókasafna á höfuðborgarsvæðinu um að bókasafnsskírteini verði sameiginleg fyrir höfuðborgarsvæðið. Menningar- og ferðamálanefndar tekur vel í erindið og vísar því til staðfestingar í bæjarráði.
Svar

Bæjarráð samþykkir að unnið verði að því að útgefin bókasafnsskírteini verði sameiginleg fyrir höfuðborgarsvæðið, þannig að skírteini gefið út í einu safni gildi í þeim öllum.