Suðurgata 36, deiliskipulag
Suðurgata 36
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 723
15. desember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísaði umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. eigenda dags. 15.9.2020 um breytt deiliskipulag til skipulags- og byggingarráðs. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir fjölgun íbúða þ.e. að á jarðhæð verði heimilað að fá samþykktar tvær íbúðir þannig að íbúðum á lóð fjölgi úr tveimur íbúðum í þrjár. Skipulags- og byggingarráð samþykki að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurgötu 36 og var það staðfest í bæjarstjórn. Tillagan var auk þess grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum. Tillagan var auglýst frá 27.10.2020-08.12.2020. Athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð vegna framkominna athugasemda.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122528 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025956