Tinnuskarð 24, breyting á deiliskipulagi
Tinnuskarð 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1861
6. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.desember sl. Lögð fram ný deiliskipulagsbreyting, er nær til lóðarinnar við Tinnuskarð 24. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um eina (5 í stað 4), breyttum byggingarreit og bílastæðum. Gólfkóti er hækkaður um 0,5m, kóti í baklóð lækkaður um 1,35-1,5m. Með vísan í breytt orðalag almennra skilmála Skarðhlíðar 2. og 3 áfanga sem samþykkt var á fundi skipulags- og byggingaráðs þann 15.12. s.l. er tillagan lögð fram.
Með vísan til samþykktar um breytt orðalag almennra skilmála Skarðhlíðar 2. og 3 áfanga sem samþykkt var á fundi skipulags- og byggingaráðs þann 15.12. s.l., samþykkir skipulags- og byggingarráð erindið og að málsmeðferð verði í samræmi við 43.gr. skipulagslaga. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs með 10 greiddum atkvæðum en Helga Ingólfsdóttir situr hjá.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 227964 → skrá.is
Hnitnúmer: 10130476