Lækjarhvammur 1, breyting á deiliskipulagi
Lækjarhvammur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1852
2. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25.ágúst sl. Sigurbjörn Viðar Karlsson sækir þann 18.8.2020 um breytingu á deiliskipulagi vegna stækkunar á lóð. Bæjarráð samþykkti þann 26.3.2020 fyrir sitt leyti umbeðna lóðarstækkun að undangenginni grenndarkynningu sem fór fram 21.1.-18.2.2020. Athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytt deiliskipulag og fer málsmeðferð skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga. Erindinu er jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls. Einnig tekur Sigurður Þ. Ragnarsson til máls og kemur Ingi til andsvars. Sigurður svarar andsvari. Ingi kemur þá til andsvars öðru sinni.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs með 10 greiddum atkvæðum. Sigurður Þ. Ragnarsson situr hjá.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121771 → skrá.is
Hnitnúmer: 10035955