Vesturgata 8, deiliskipulagsbreyting, Norðurbakki
Vesturgata 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1851
19. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
4. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs dags. 11. ágúst sl. Tillaga Hafnarfjarðarkaupstaðar um breytt deiliskipulag Norðurbakka vegna lóðanna Vesturgötu 4- 8 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 22.7.2020 og vísað til staðfestingar skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð samþykkir með vísan í 43. gr. skipulagslaga að auglýsa breytt deiliskipulag lóðanna Vesturgata 4-8. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122856 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027605